Dagskrá lokahófs, mćting og liđaskipting
ATH BREYTING
Lokahófið fer fram í sal í Borgartúni 28 (fyrirtæki þarna sem heitir einar farestveit), kebab verður enn á boðstólnum en fólk getur mætt með sitt eigið áfengi og því um að gera að drífa sig í ríkið!!!
Dagskrá laugardagsins er komin á hreint.
16:00 - Mæting á gervigrasið hjá KR, spilaður verður stuttur leikur milli Hamranna og Vina. Menn eru beðnir um að melda sig í annað hvort liðið í athugasemdunum.
18:00 - Fyrir partý hjá Bjarna/Olla, boðið verður upp á léttar en fallegar veitingar til að svala þorstanum eftir knattspyrnuna.
20:00 - Mæting á Kebab-húsið á Grensásvegi þar sem lokahófið mun fara fram. Snætt verður dýrindis kebab. Kosið verður um ýmis afrek sumarsins og verðlaun veitt í kjölfarið. Leikmenn eru hvattir til að undirbúa skemmtiatriði og geta þá verið sambandi við Olla eða Hannes.
22:00 Stefnum á að formleg dagskrá verði ekki mikið lengri en Hannes mun engu að síður bjóða upp á Hugvekju í einu horni veitingastaðarins og er mönnum frjálst að ljá honum eyra.
Verð: Litlar 1.500 kr. per leikmann
Verð: Litlar 2.000 kr. per leikmann + maki
Greiðsla: Það væri frábært ef menn myndu ganga frá greiðslu sem allra fyrst með því að leggja inn á reikningsnúmerið hér fyrir neðan. Setja þá nafnið í skýring greiðslu og + 1 ef svo ber undir. Við þurfum helst að vera komnir með staðfestan fjölda á föstudag. Minni líka menn á melda sig í lið í athugasemdunum.
Rnr: 0101-26-61920
Kt.: 630106-1920




