24. febrúar 2009 klukkan 17:23
Á sunnudaginn mættum við blendingsliði úr röðum Hattar, Dalvíkur og slæðingur af öðrum austanmönnum að ég held. Veður til knattsparks var allt hið besta og leikurinn bara nokkuð góður.
Við stilltum upp í 4-5-1.
Í fyrri hálfleik spiluðum við vörnina vel og gáfum fá færi á okkur en vorum hins vegar nokkuð geldir sóknarlega. Bæði sóttum við á fáum mönnum auk þess sem hreyfanleikinn var lítill á liðinu. Framan af var þetta því nokkuð rólegt í færum talið en spilamennskan ágæt.
Seinni hálfleikurinn var opnari og komumst við fyrstir á blað með góðu marki. Bjarni Þ sendi þá langan bolta fram, beint á kollinn á nafna sínum Pálmasyni sem flikkaði honum inn fyrir vörnina. Þar var Nonni mættur og lyfti boltanum skemmtilega yfir markvörð Hattar. 1-0.
Við duttum hins vegar strax í kæruleysi og fengum á okkur mark um mínútu síðar. Þá rataði stungusending á óskiljanlegan hátt fram hjá 3-4 leikmönnum þar sem leikmaður Hattar mætti og slúttaði í hornið. 1-1.
Um 10 mín síðar komst Höttur í 2-1 eftir að dæmd hafði verið vítaspyrna fyrir tiltölulega saklaust brot. Í þessari stöðu misstum við aðeins varnarskipulagið og menn voru seinir til baka. Við áttum ágætis sóknir án þess að skora þar til á síðustu mínútum leiksins að við fengum víti fyrir svipað saklaust brot og var það Daði Kristjánsson sem lagði boltann smekklega í netið og jafnaði leikinn. 2-2.
Heilt yfir alveg ágætis leikur og helst hægt að finna að því að menn duttu aðeins úr skipulagi síðustu 20 mín. Hattarliðið var með sterka leikmenn innanborðs og á svipuðu leveli og bæði Reynir og Grótta sem við höfum spilað við upp á síðkastið. Það er því góður gangur á þessu og verðugt verkefni í næstu viku þegar við mætum Selfoss, sem var einmitt mjög nálægt því að fara upp í Úrvalsdeild á síðasta tímabili.
Það er því um að gera að mæta vel á æfingarnar sem eru framundan og vera í standi til þess að takast á við sterkari lið. Veðrið er líka búið að leika við okkur á síðustu skipti og því vonandi að frostæfingunum sé að ljúka.